26.10.2007 | 10:19
Biblían í fyrsta sætið en...
Væntanlega eru flestir búnir að fá nóg af umræðunni um nýju Biblíuna. En mig langar til að velta upp nýjum fleti; Ég var út í Færeyjum í júlímánuði síðastliðnum og einsog alltaf í útlöndum þá valhoppaði ég inn í bókabúð. þar sem ég er áhugasamur um Biblíuna fór ég og kannaði úrvalið hjá frændum vorum. Og ég varð talsvert hissa. Það voru til ýmsar tegundir, þeas. ýmsar útfærslur, litlar stórar harðspjalda leður og þannig mætti lengi upptelja. En verðið á þeim var talsvert lægra en gerist og gengur hérna heima. Algengt verð á Biblíu í Færeyjum var nefnilega frá 100 kr. færeyskum upp í 2-300 krónur. Og færeyska krónan er jöfn þeirri dönsku. Nýja íslenska er til ódýrust á rúmar fimm þúsund krónur! færeyingar eru umþaðbil 47 þúsund talsins en við rúm 300 þúsund! Hvernig geta þeir haft sínar Biblíur svona mikið ódýrari? Gaman væri að fá svör við þessu frá JPV útgáfunni. Mér finnst þetta dálítið undarlegt....
![]() |
Biblían í fyrsta sæti á metsölulista Eymundsson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.10.2007 | 00:56
Mig grunaði þetta...
...alltaf en hafði ekki kjark til að lýsa því yfir. Ég nefnilega er mikill áhugamaður um téða Neanderdalsmenn og hef lesið margan vísdóminn um þessi ágætu hálfmenni. Og ég hef velt því fyrir mér undanfarin tuttugu og fimm ár hvort að það gæti verið að MC1R finndist í þeim... ég var nokkuð sjúr á því að svo væri en vantaði kjarkinn.... en nú er semsagt búið að sanna það að þeir hafi flestir ef ekki alltir verið rauðhærðir og það er þungi fargi af mér létt. Ég veit ekki hvort ég á að segja frá öðrum grunsemdum sem hafa þjakað mig undanfarin sautján ár..en læt það flakka. Ég held að geimverur séu flestar með áskapaðar strípur..
![]() |
Vísbendingar um að sumir neanderthalsmenn hafi verið rauðhærðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.10.2007 | 17:15
Ekki borgað fyrir nekt.
![]() |
Borgarráð leggst gegn því að heimila nektardans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 26.10.2007 kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.10.2007 | 23:45
Pink Floyd, The Wall
Þegar Dúndurfréttir fluttu The Wall í Höllinni fyrr á þessu ári, ásamt Melabandinu, skrifaði ég eftirfarandi í prógram sem dreift var á staðnum. Þarsem ég er nokkuð viss um að allir bloggarar voru ekki á staðnum, birti ég þetta hérna....
Ég gleymi aldrei þeirri tilfinningu er ég opnaði jólapakkann frá móður minni á því herrans ári 1979 og tvöfalda hljómplatan The Wall með Pink Floyd kom í ljós. Síðan þá hef ég átt nokkur eintök af þessum gæðagrip, bæði vinyl og geisladiska. Og hvílík hljómplata! maður lifandi! Aldrei áður hafði komið út slík hljómplata og ef út í það er farið ekki heldur síðar.
The Wall er ellefta plata bresku hljómsveitarinnar Pink Floyd. Og hún var reyndar tvöföld. The Wall var síðasta plata Pink Floyd sem Richard Wright hljómborðsleikari var á þar til hann snéri aftur árið 1987. Roger Waters bassaleikari, lagahöfundur og söngvari (og Íslandsvinur!) hafði hert tök sín á bandinu og var farinn að sýna einræðistilburði og það skapaði að sjálfsögðu mikla spennu innan hljómsveitarinnar.
Árið 1977 voru Pink Floyd að fylgja eftir plötunni Animals. Tónleikaferðin varð ekki neinn dans á rósum og félögunum leið ekki vel. Á síðustu tónleikunum í ferðinni og fram fóru í Montreal í Kanada var Waters að syngja lagið Pigs on the wing (Part 1) er einn tónleikagesta kveikti í flugeldi nálægt sviðinu. Waters hætti að syngja lagið og blótaði gerandanum bæði hátt og lengi. Hann bað einnig aðra áheyrendur vinsamlegast um að halda kjafti því hann væri að reyna að syngja! Síðan hélt hann áfram söng sínum en allt var á afturfótunum eftir þetta. Þegar kom að laginu Pigs (Three different ones) sá Waters einn gestanna klifra í neti sem skildi hljómsveitina frá áhorfendum. Waters hrækti í andlit hans en sá svo eftir öllu saman. Hann vildi fá öruggari "vegg" á milli hljómsveitarinnar og tónleikagesta. Hugmyndin að The Wall var fædd.
The Wall er svokölluð "concept" plata eða rokkópera eins og það hét einusinni. Sagan er um mann að nafni Pink sem átti ekki mjög ánægjulega æsku. Samfélagið fór illa með hann, hann var traðkaður í svaðið alveg frá því að hann fyrst leit dagsins ljós. Líktog Waters sjálfur missti Pink föður sinn í seinni heimsstyrjöldinni, kennararnir í skólanum lögðu hann í einelti og beittu hann ofbeldi. Þeir vildu móta hann og aðra nemendur eftir sínu höfði, einsog "samfélagið" vildi hafa þá. Móðir hans reyndi að vernda hann en í raun ofverndaði hún afkvæmi sitt.
Þetta reyndist Pink um megn og smám saman hvarf hann inn í sjálfan sig. Hann reisti "vegg" til þess að vernda sig frá umhverfinu. Hvert það mótlæti sem hann varð fyrir varð að enn einum múrsteininum í vegginn. Eftir að hafa reynt lengi, án árangurs að finna síðustu steinana í vegginn gerðist Pink rokkstjarna og giftist. Fljótlega gafst eiginkonan upp vegna þess hversu Pink var fjarrænn og leitaði í annað fang. Þá gat Pink klárað vegginn sinn. Pink gerðist æ dularfyllri innan veggja og smám saman missir hann vitið en er þvingaður til þess að taka þátt í lífinu utan veggja vegna lífstíls hans sem rokktónlistarmaður. Pink heldur að hann sé fasískur einræðisherra og lætur rétta yfir sér. The Trial er einhver magnaðasti hluti verksins og verður fróðlegt að heyra Dúndurfréttir og Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja það. The Wall lýkur á þessum undarlega texta:
All alone, or in two's,
The ones who really love you
Walk up and down outside the wall.
Some hand in hand
And some gathered together in bands.
The bleeding hearts and artists
Make their stand.
And when they've given you their all
Some stagger and fall, after all it's not easy
Banging your heart against some mad bugger's wall.
"Isn't this where...."
en platan sjálf hefst á þessum orðum: "...we came in?" Er rokkstjarnan Pink komin á byrjunarreitinn aftur?
Árið 1999 hafði platan selst í yfir 30 milljón eintökum og eitthvað hefur selst síðan! Engin tvöföld plata hefur selst í slíkum mæli. The Wall var í fimmtán vikur í efsta sæti bandaríska Billboard listans.
Einsog áður sagði hafði Roger Waters í raun sölsað hljómsveitina undir sig. Þó á snillingurinn David Gilmour sína spretti. Hið magnaða Comfortably numb er að miklu leiti hans smíð og hann syngur einnig mikið. Nick Mason er trommari Pink Floyd. En, The Wall varð í raun upphafið að endalokum Pink Floyd einsog heimurinn hafði þekkt hljómsveitina. Richard Wright var rekinn, og Roger Waters reyndi síðar að leggja bandið niður, en það er allt önnur saga.
Lítið hefur verið fjallað hér um tónlistina í The Wall. Aðrir menn eru hæfari til þess, en ég leyfi mér að fullyrða svona í lokin að enginn önnur hljómsveit, íslensk eða erlend, gæti flutt The Wall betur en Dúndurfréttir, nema ef vera skyldi Pink Floyd, með alla fjóra innanborðs. Og ekki skemmir að Melabandið kann líka að rokka....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.10.2007 | 08:51
Fékk að fara heim?
![]() |
Lögreglan: Ótrúlegt að ekki skyldi verða stórslys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
23.10.2007 | 21:30
Þetta er magnað!!!!
Ég sá þessa frétt í Sjónvarpinu fyrr í kvöld. Þar var sagt að flytja ætti heilt þorp og kirkjuna með!! Ég þurfti að bíða í smá tíma til að fá að vita af hverju ætti að flytja heila klabbið..það kom svo í ljós að það var væn hrúga af brúnkolum undir þorpinu. Þá náttúrulega gat ég ekki annað en hallmælt kapítalistunum sem fengu það í gegn að flytja heilt þorp og alla þorpsbúa hreppaflutningum til að geta mokað undan þeim...en hjarta mitt fékk síðan ró er Útvarpsstjóri kær upplýsti að jarðvegurinn væri eldfimur!!! Það gæti hreinlega kviknað í jörðinni! En samt........ Líklegast var löggustöðin og dómshúsið skilið eftir...en fengu íbúar nýtt þorp eða var þeim plantað niður í eitthvert nágrannaþorp?
![]() |
660 tonna steinkirkja flutt í heilu lagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.10.2007 | 16:22
Reikistjarna

Ég var reikistjarna
á reikulli braut
á ofsahraða
áfram ég þaut.
Um húmið haustkalt
um hverfulan geim
ég leitaði lengi
að leiðinni heim.
Ég þráði þögull
þína gjöfulu ást
sem á norðurhimni
á næturnar sást.
Að lokum ég kom þar
að líknandi sól
sem af náð sinni skein
á minn Norðurpól.
Ég er fastastjarnan
sem fann sinn stað
á heilögum himni
á Hauskúpustað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.10.2007 | 13:46
Það þarf svosem enginn að vera hissa...
....því í myndbandi sem fylgir fréttinni sést hvar er verið að þramma inn eftir kirkjugólfi með konuna, niður langan og snarbrattann stiga og hver veit hvaða aðrar líkamsæfingar háöldruð konan var látin gera. Þori varla að hugsa út í það!!! Blessuð sé minning hennar.
![]() |
82 ára gömul brúður er látin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.10.2007 | 12:54
Ég er fluttur til Grænhöfðaeyja...
...hef nefnilega frétt að þar borgi maður lítinn sem engan skatt. Annars finnst mér þetta með afbrigðum góð hugmynd hjá dönunum.. að skrá sig þarsem enginn getur fundið mann. Segir ekki í góðu kvæði, þarsem enginn þekkir mann, þar er gott að vera? Nema að maður þarf ekki að vera á staðnum, það er nóg að skrá sig í einhverju lokuðu ríki. Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst hugmyndin heillandi.
![]() |
Nærri hundrað Danir horfnir" í Norður-Kóreu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2007 | 12:45
Fyrir Dylan nörda...
..og þeir eru margir skal ég segja ykkur. Hér er listi yfir lög sem hafa verið á Dylan plötum en kallinn aldrei flutt á tónleikum. Þetta er listi frá árinu 2002 og hann gæti hafa flutt eitthvað af þessum lögum síðan. Ef einhver veit betur væri gaman að fá þá vitneskju. ; Click on a title for more details.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)