29.3.2009 | 19:59
Það er ennþá maí.
Enn verð ég að halda áfram
með ókunnum krafti
sem sýnir á sér sínar
bestu hliðar
á stundum
og ég reisti upp líkamann
lífvana
og fór með snögga bæn
til að blása í mig lífi
og þar sem ég kraup við rúmið
með tunglskinið í augum
var ég spurður hvar ég hefði verið
og ég sagði bara einhversstaðar
þar sem þú ert til
og ég brosti framan í mánann
og kallaði á hann með nafni
þú ert minn
og það er ennþá maí
og það verður alltaf maí því þá er fæðingin
og ég held áfram
innblásinn af krafti sem ég er að verða
ástfanginn af
aðeins ég og þú og fæðingin
þar sem eru afburðafallegar konur
sem heilsa öðruhvoru
í hríðunum
og ég rétti út höndina og
þú býður mér til sólarlandsins
þar sem fallega fólkið er í friði
og spekt
allsgáð sólin nýtur þinnar verndar
þar til allt verður nýtt
og ekkert er lengur
aumur hégómi.
Athugasemdir
Þú ert alveg frábær í ljóðagerðinni Guðni... það er einhver óútskýranleg dýpt í þeim og rosalega gott flæði... þau fá mig til að staldra við og hugsa... oft er líka hellingur sem maður les á milli línanna...
Brattur, 29.3.2009 kl. 23:22
Sæll og blessaður
Flottur ljóðskapur. Nú lifum við Brattur í voninni að þú semjir ljóð um okkur. Það má sko ekki gera uppá milli vina!!!
Vertu Guði falinn
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.3.2009 kl. 00:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.