Er fólk ekki alveg í lagi?

lies

Hvernig dettur einhverjum í hug að setja marijuana í mat lögreglumanns? Er ekki heil brú í þessu liði? En það er annað sem ég hnaut um; sagt var í fréttinni að þau hafi staðist lygapróf. Bandaríkjamenn hafa ótrúlega trú á lygamælum. Það er með ólíkindum hvernig þeir nota lygamæli í nánast hvað tilfelli sem er. Ég sá í sjónvarpi fyrir nokkrum  dögum síðan brot úr einhverjum  þætti með amerískum sálfræðingi sem ég veit ekki hvað heitir, hálf sköllóttur með yfirskegg, og þar var verið að fjalla um eitthvert mál og lygaprófarar voru mættir á svæðið. Þar kom fram að einn af prófurunum var formaður félags lygaraprófara í Kaliforníu eða einhverju öðru ríki. Þeir eru semsagt með verkalýðsfélag eða einhverskonar hagsmunasamtök!


mbl.is Setti maríjúana í kjötbollurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Lára

hehehe þeir í Ameríkusýslunni slá öll met ég segi ekki annað!

Guðný Lára, 6.12.2007 kl. 11:46

2 Smámynd: ViceRoy

Hehehe þetta er svona eins og ef Sterkasti maður heims félli á lyfjaprófi vegna steranotkunar og segði "Eiginkonan hlýtur að hafa sett stera í morgunmatinn minn!" :D  Það trúa því væntanlega allir :D

ViceRoy, 6.12.2007 kl. 12:13

3 identicon

sweet Mary Jane...

Hrúturinn (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 14:34

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 6.12.2007 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband