20.10.2007 | 03:10
Ég veit
Hvert sem ég lít sé ég lesti
og lánlausar konur og menn
allt sem ég sé eru stjörnur
sem skinu og flökta víst enn.
Og ég veit einn daginn muntu sigra
og ég veit einn daginn sérðu sól
og ég veit einn daginn muntu vinna
og ég veit einn daginn ferðu burt
Allsstaðar er sama amstrið
efalaust allt saman farið
það eina sem þú kannt er að spyrja
í öruggri vissu um svarið.
og ég veit einn daginn færðu frelsið
og ég veit einn daginn sérðu ljós
og ég veit einn daginn ertá kletti
og ég veit einn daginn færðu frið.
Þú veist að þú ert ósköp lítill
einsog sandkorn í fjallanna mergð.
Í augum Guðs ertu risi
og einstakur að allri gerð.
og ég veit einn daginn muntu fagna
og ég veit einn daginn sérðu allt
og ég veit einn daginn muntu sigra
og ég veit einn daginn ferðu heim
og ég veit einn daginn muntu sigra
og ég veit einn daginn sérðu allt
og ég veit einn daginn muntu vinna
og ég veit einn daginn ferðu heim.
Athugasemdir
Mikil og stór loforð í þessu ljóði, ekki óraunhæf, heldur með fullvissu um hið betra. Langt síðan ég hef commentað hjá þér minn kæri Guðni. Gangi þér og þínum allt í haginn og Guð geymi.
Rannveig Margrét Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 20.10.2007 kl. 16:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.