13.6.2009 | 20:10
Hér kemur síðasta færslan.....
Siggi Sigg var ekki gamall
Siggi Sigg var frekar ungur
er hann fannst í hafsins slýi
með hausinn fullann af köldu blýi.
Siggi Sigg var ekki gamall
Siggi Sigg var frekar ungur
er sendur var hann seint í rúmið
og sólin hvarf í dökka húmið.
Elsku Siggi þú ert sætur
sér í lagi um dimmar nætur
ég hef á þér miklar mætur
má ég glenna í sundur fætur?
Siggi Sigg var ekki gamall
Siggi Sigg var frekar ungur
er hann fékk sér fyrst í nös
frosinn útá ystu snös.
Siggi Sigg var ekki gamall
Siggi Sigg var frekar ungur
erann kýldi einn til dauða
aðeins fyrir blóðið rauða.
Vertu þægur engar þrætur
þú átt engar minnstu bætur
Siggi er ekki lengur sætur
sama hversu mikið grætur.
Siggi Sigg varð ekki gamall
Siggi Sigg var frekar ungur
er hann fannst í hafsins slýi
með hausinn fullann af köldu blýi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.6.2009 | 23:15
Halelújablúsinn
Halelújablús.
Hertu upp hugann
því heilaga dúfan mun láta sjá sig
hertu upp hugann
því heilaga dúfan er söm við sig
og halelújablúsinn ég ætla núna að hamra í þig.
Eittsinn við ætluðum
til Eistlands sannleikann að höndla og éta soðinn lax
já eittsinn við fórum
Til Eistlands að að þamba vodka með Stalín og Marx
en halelújablúsinn ég heimta að komi nú strax.
Við dönsuðum valsinn
í Varsjá og rýndum í framtíð svo forna
við dönsuðum vals
í Búdapest og lásum um framtíðina svo forna
en halelujablúsinn við kyrjum nú alla mánudagsmorgna.
Halelújablús halelújablús halelújablús
halelújablús halelújablús halelújablús.
En Jesús varð je je
og við játum hann saman öll sunnudagskvöld
og Jesús varð je je
og við játum hann saman öll þriðjudagskvöld
þar halelújablúsinn sá besti blámi tekur þá öll völd.
Hertu´upp hugann
því hvíta dúfan kemur senn
hertu upp hugann
því hvíta sæta dúfan þín vina kemur nú senn
rennum saman í halelújablúsinn einusinni enn.
Gráttu ekki gæskan
gamla rússadansinn dauða
gráttu ekki gæskan
gamla Engels og Maó og Lenin steindauða
kyrjum halelújablúsinn fyrir kommana svo blóðdroparauða.
Halelújablús halelújablús halelújablús
halelújablús halelújablús halelújablús.
Við fögnum því dúfa
ef þú dvelur nú okkur hjá
elsku litla sæta dúfa
dveldu okkur ætíð hjá
og við kyrjum halelujablúsinn þartil ég fæ ljósið að sjá.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.5.2009 | 20:25
Brúða
Ég rölti um í reiðuleysi
ráfaði um götur og torg
fyrir ofan heiður, tær himinn
í huganum gleði og sorg.
Ég fann fátt, ekki stórt né smátt
og ekkert lét mig í friði
dimman datt á, ekkert ég sá
einsog í myrkum móðurkviði.
Ég gekk um garðinn víða
þar sem gróður er stór og smár
úrsérvaxin en himinhá tré
hristu af sér þúsund tár.
Ég fann fátt, hvorki stórt né smátt
og allir létu mig í friði
dimman steindauð sólin eldrauð
einsog í dýr í döprum móðurkviði.
Ég hugsaði´ um hamingju mína
sem hélt mér blýföstum tökum
ég elska, held ég mig ennþá
með öllum hugsanlegum rökum.
Ég fann fátt, ekkert hátt né lágt
og aldurinn lét mig ekki´ í friði
dimman hrundi´á, sá mig hér og þá
einsog forðum í mínum móðurkviði.
Öll mín lögmál eru lúin
og lítið sem ekkert að ske
úr götu minni ég greip þá
grímu þá sem er hvorki né.
Ég fann fátt, hvorki gróða né afslátt
og ilmurinn lét mig ekki´ í friði
dimman var á, slóða sem lá þá
aftur að mínum móðurkviði
Ég mætti öllum og engum
og ýmislegt á göngu minni sá
en hvorki þig né angistina þína
né þrána sem birtist aftanfrá.
Ég fann fátt, hvorki dökkt né dimmblátt
og draumurinn lét mig ekki´ í friði
dimman ljósgrá, leit út sárþjáð
líktog hún væri úr myrkum móðurkviði
Bráðum ég bregð mér þreyttur
undir brúnna sem ekki er hér
og ég bið um að barnið í mér lifi
einsog brúða sem er eftirmynd af mér.
Ég fann fátt, hvorki þræl né ambátt
og friðurinn lætur mig ekki´ í friði
dimman er sátt og ég frír fer brátt
frjáls úr myrkum móðurkviði.
Bloggar | Breytt 3.6.2009 kl. 23:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2009 | 15:13
Blogg frá Heiðu B. Heiðars.
Eftirfarandi má lesa á heimasíðu Heiðu. Ég tók mér það bessaleyfi að birta það hér. Heimsækið annars hennar ágætu síðu.;
Auglýsi eftir fólki sem hefur fengið nóg!
Ég er búin að vera í smá sumardvala og lítið látið á mér bera undanfarið. En nú er ég algjörlega gjörsamlega að springa!
Framundan eru gjaldþrot sveitarfélaga...og við erum ekkert bara að tala um þessi litlu útilandistan sem okkur hérna í Reykjavík virðist finnast lítið koma okkur við
Niðurskurður upp á tugi milljarða og þetta "norræna velferðarkerfi" hennar Jóhönnu eru náttúrulega bara blautir draumar.
Hvernig er annars velferðarkerfið á Kúbu?
Heimilin, fyrirtækin að fara yfir um hvert á fætur öðru og í fjöruborðinu bíða viðskiptagúruar eftir því að AGS færi þeim auðlindirnar okkar á silfurfati.
ESB hvað?
Nú auglýsi ég sem sagt eftir fólki sem er búið að fá nóg!
Sendið mér tölvupóst á geislabaugur@gmail.com og skrifið á ykkar eigin bloggsíður
Og ég undirstrika það að það skiptir ekki máli í hvaða flokka þú hefur raðað þér hingað til.... við erum ÖLL að lenda í sama skítnum
Samstaða um betra líf hlýtur að toppa hvað þú hefur kosið
Nú finnum við hvort annað og látum vita af því að við sitjum ekki þegjandi á meðan okkur er fórnað á altari AGS og sett í fátæktargildru næstu áratugina!!
Ímynd Íslands er sterk |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2009 | 22:23
2 ljóð
Var að leika mér við að setja tvö ljóð saman í eitt. Kom bara ágætlega út eða hvað finnst ykkur??
Nú er ég staddur hinumegin við hvergi
í hávaða svo auðveldum að hlustirnar kveina
ég held á glasi og bjórinn minn bergi
og ber á herðum mér krossa og steina.
Þú ert farin en þó ertu hér
þögnin er hærri en allt sem er
hamingjan fylgi þér hérumbil
hafðu það gott svona umþaðbil.
Við eigum myndir og minjagripi
og málaðan staf
þessir litir og líkneskin smáu
lifa okkur af.
Ég horfi oní djúpið og drekk þess minni
með dáið bros fast í tannlausum garði
ypptandi öxlum yfir fornri framtíðinni
sem við fortíð rétt svo jafntefli marði.
Ég sé þig fara með fölleitt skott
þér finnst kanski´ einsog vont sé gott
þó að það svíði þá sveið meir fyrr
og sumar nætur var ég jú kyrr.
Við eigum myndir og minjagripi
og málaðan staf
þessir litir og líkneskin smáu
lifa okkur af.
Ég gefst ekki upp, nei aldrei ég brotna
og ekki sýnast mér himnarnir fagna
ég öskra ég æpi, horfi á sjálfan mig rotna
og elska þartil ég að eilífu þagna.
Ég veit ég hverf það er vitað mál
á veraldarbotn ein gömul sál
sem þekkti Guð sinn en gleymdi skjótt
en Guð minn komdu ég sekk of fljótt
Við eigum myndir og minjagripi
og málaðan staf
þessir litir og líkneskin smáu
lifa okkur af.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.5.2009 | 02:05
Tveir snillingar...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.5.2009 | 23:28
Donovan aftur!!
Það er ekki hægt að sleppa þessu lagi. Þegar Donovan kom hingað til lands 1994 tókum við Halldór Ingi útvarpsviðtal við hann og hann áritaði plötu fyrir mig. Ég er stoltur af þeirri eign.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2009 | 23:09
Donovan
Ótrúlegt hvað þessi maður er fljótur að gleymast... hann er eitt af stórmennum bítlaaldar. Spilaði hér á landi 1994.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)