Hvanndalsbræður með tónleika á Græna hattinum...

hvanndalsbræður 2

.....Akureyri á morgun og föstudag.

Hér kemur saga þessara ágætu bræðra einsog hana er að finna á heimasíðu bræðranna.

Ferðin frá Hvanndal til byggða!

Á dögum Ólafs Ragnars Forseta bjó sá maður í Hvanndölum sem Tómas hét; hans synir voru þeir svokölluðu Hvanndalsbræður. Hét hinn elsti Rögnvaldur, en hinir Valur og Sumarliði. Rögnvaldur hafði átta um þrítugt, en hinir voru fyrir innan þrítugt þegar þessi saga gerðist hér um bil 2002. Allir voru þeir bræður atgervismenn miklir að afli og orku og mestu ofurhugar; þeir voru vanir vosi og sjóferðum og aflamenn miklir og þóttu giftusamir löngum. Af því þeir þóttu bestu sjómenn fyrir norðan á þeim dögum fékk Ólafur Ragnar þá til að leita að Akureyri og gaf þeim til þess mikið fé.

Þeir bræður fóru þrír saman á áttæringi, ásamt einni hænu og belju og var Rögnvaldur formaðurinn; hann valdi gott veður til ferðarinnar, og höfðu þeir með sér vistir og aðrar nauðsynjar. Þeir lögðu á stað á nóni í hagstæðum byr og höfðu hálfnað sundið um sólarlag. Kom þá á fyrir þeim austansúld og svæla með dimmviðrisþoku svo varla sá út fyrir keipana, rak þá svo vestur í haf í tvö dægur því enginn kostur var að halda stefnunni suður, svo var veðurofsinn mikill með stórsjó og steypiregni. Sneru þeir þá undan og héldu til lands og náðu lendingu á Hrauni í Fljótum eftir tvo sólarhringa.

Þó svona tækist til í þetta sinn lögðu þeir bræður aftur á stað og hrepptu enn austanvind mikinn og dimmviðri. Þegar þeir höfðu siglt tvö dægur sótti þá Val og Rögnvald svo mikill svefn að þeir gátu ekki haldið sér upp. Tóku þeir þá það til ráðs að þeir bundu seglið fast og lögðust fyrir, en Sumarliði var við stjórn, aðeins hálfvakandi. Um þetta leyti létti nokkuð af dimmviðrinu svo að sást til sólar og var hún komin í vestur, en til suðurs var að sjá eitthvað hvítt og ætlaði Sumarliði að það mundi vera hafskip. En brátt sá hann að þetta var hæsta bjargið á Hrísey sjálfri og var það alhvítt af bjargfýling sem sæi á fífubing.

Vakti þá Sumarliði bræður sína með því að þeir væru komnir undir eyna. Þeir bræður ruku á fætur og tréfelldu, tóku til ára og drógu sig upp í eyjarvarið þó veðrið væri enn mikið, en þeir voru svo röskir menn að þeir róðruðu viku sjávar á eyktinni. Komust þeir svo að skeri nokkru við eyna og sópuðu þar saman fugli með báðum höndum, svo var hann mikill og spakur. Síðan renndu þeir vöðum undir eynni; en ekki urðu þeir fiskvarir að því skapi sem fuglinn var mikill.

Lögðu þeir svo að landi í vík einni, köstuðu stjóra og bundu þar við skipið, en sú yfirsjón varð þeim að þeir festu ekki landfestina svo að brimsúgurinn tók hana út fyrir þeim. Af því veðrið var mikið fór skipið þegar að reka undan eynni og urðu þeir að horfa á það þar sem þeir stóðu allslausir uppi í fjörunni.

Var það ekki að undra þó þeir kæmust við af ástandi sínu, þar sem ekkert var sýnna en opinn dauðinn fyrir. Fyrst sendu þeir beljuna til sunds en hún komst eingöngu hálfan meter áður en hún drukknaði, en Rögnvaldur var syndur og lagðist hann tvisvar eftir skipinu; en bæði vegna ofveðurs og brims sem hleypti þá í ætlaði hann varla að ná landi; en skipið rak æ lengra undan með öllu sem þeir höfðu sér til lífsbjargar, mat og drykk og fatnaði þeirra.

Í þessum hörmungum reikuðu þeir ráðþrota upp frá flæðarmálinu; varð þeim það eitt til úrræða að þeir féllu á kné á klettunum og báðu guð grátandi hjálpar og miskunnar. Síðan ráfuðu þeir upp á eyna og töluðu ekki orð frá munni.

Þá gaf guð það að sjó og vind kyrrði svo að það kom fyrst logn og þar næst hægur vindur á útsunnan svo að skipinu sveif aftur að eynni. Óttuðust þeir þá þó djúpt væri að skipið kynni að steyta á skeri þar sem þeir næðu ekki til, en það varð þó ekki.

Þeir bræður höfðu haft haldfæri með sér úr skipinu og röktu það niður í stóran hring, bundu stein í endann á því og köstuðu honum út í skipið. Vildi þeim það til lífs og bjargar að steinninn festist undir stafnlokinu á skipinu svo að þeir gátu dregið það að sér og má nærri geta hversu óumræðilegur fögnuður það mun hafa verið fyrir þá. Bjuggu þeir svo betur um skipið eftir en áður og tóku síðan fugl (langvíur) og egg í besta næði og blíðviðri.

Þeir vaðbáru eyna og var hún um 5000 faðma á lengd, en á breidd og hæð um 1000 faðma. Ferns konar grjót var á eynni og hún öll með hólum og gjám, full af grjóti og engin grastó í milli. Alls voru þeir sjö dægur við eyna; höfðu þeir þá náð 800 af fugli, ógrynni af eggjum og nokkru af fiski. Frá Hrísey var landið allt horfið sjónum nema einar þrjár þúfur, en það voru hæstu fjöll á landi.

Þegar þeir fóru frá eynni fengu þeir hagstæðan byr, farnaðist allt vel og tóku land á Árskógssandi á Maríumessu. Amma þeirra, Eivör, þóttist hafa heimt þá úr helju og varð alls hugar fegin komu þeirra. Þessi för Hvanndalsbræðra hefur síðan verið að minnum höfð.

Eftir þetta hringdu bræðurnir á leigubíl og óku leiðar sinnar til Akureyrar með ömmu sinni og hænunni.

Stuðst er við áður útgefna sögu sem má finna á http://www.snerpa.is/net/thjod/hvanndal.htm


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Múahahahaha!!!

Dásamlegt! Hvanndalsbræður eru einir af mínum uppáhaldsbræðrum!

Ylfa Mist Helgadóttir, 22.11.2007 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband