17.9.2007 | 10:51
Grípum til aðgerða!
Ég ætla að leyfa mér að birta hérna fréttatilkynningu frá UNICEF;
Við ætlum að halda tónleika til styrktar Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna miðvikudaginn 19. september 2007 í Listasafni Reykjavíkur. Tónleikarnir bera yfirskriftina: Hausttónleikar ÍTR og UNICEF: Grípum til aðgerða! Þær hljómsveitir sem fram koma og gefa vinnu sína eru: Jeff Who, Reykjavík, Skakkamanage, Grrrrr, Soundspell og Retro Stefson. Tónleikarnir hefjast kl. 18:30 og þeim lýkur 21:30. Húsið opnar kl. 18.00. Miðasalan hefur farið vel af stað í öllum félagsmiðstöðvum ÍTR, en aðgangseyrir er 1500 krónur. Einnig er hægt að kaupa miða í Hinu húsinu og á skrifstofu UNICEF. Rútuferðir verða í boði milli félagsmiðstöðva og Listasafns Reykjavíkur bæði fyrir og eftir tónleika. Tónleikunum verður útvarpað beint af Rás 2.
Athugasemdir
þú ert bestur !
til hamingju með að vera hættur að reykja, !
unicef gerir góða hluti !
AlheimsLjós til þín elsku besti vinur minn !
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.9.2007 kl. 15:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.