Dúkkulísa

  dúkkulísa

Þú ert ekki einsog hver önnur dúkkulísa með frosið augnaráð og kaldar hendur á mjöðm. Nei aldeilis ekki, þú ert sól og stjörnur, stórir vindlar með fallegu magabelti sem sjaldséðir eru nú til dags. Þú ert einnig hafið og fjöllin dalir og hæðir og laut og háls og ofaná þessum hálsi hvílir fallegt hrafnshöfuð, svart einsog dimmur flauelsmorgunn,  einnig hnausþykkt hvítt myrkur sem ég ósyndur maðurinn kasta mér í og áfangastaðurinn er eilífðin hinumeginn við hæðina þar sem Guð á heima og bráðum ég og þú. Þú ert ekki einsog hver önnur dúkkulísa, nei, þú ert hjartaskurðlæknirinn sem getur skoðað tilfinningarnar, þú ert heilaskurðlæknirinn sem getur kannað staðreyndirnar sem eru þessar; þú ert ekki einsog hver önnur dúkkulísa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

cool......

Gulli litli, 2.5.2008 kl. 12:32

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Flott

Marta B Helgadóttir, 3.5.2008 kl. 01:50

3 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Flott Guðni minn.

Svona eins og nútímaútgáfa af Ljóðaljóðum Slómons konungs.

Gunni Palli kokkur 

Gunnar Páll Gunnarsson, 3.5.2008 kl. 08:39

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ertu að skrifa um mig ástin mín!!!

takk fyrir pakkann, hann gladdi !

Bless inn í falegan daginn !

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 3.5.2008 kl. 14:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband