Í mánaskini

máni

Með nóttina í hárinu þínu

og myrkrið á tungunni þinni

svæfir þú sálirnar

svæfir þú nývaknaða þrána

 

með hrímskurn á auganu þínu

frystir þú þögnina

og allar setningar

sem áttu að brjóta sér leið

gegnum skuggann

sem lá við hlið okkar

og þú grefur gærdagana

í rykinu

sem mánaskinið leikur við

 

morgundagurinn spólar

upp hæðina

það verður ekki mokað í náinni framtíð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Flott!

Hilmar Gunnlaugsson, 12.3.2009 kl. 20:08

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Mjög flott hjá þér.

Guð veri með þér og þínum

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.3.2009 kl. 20:23

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

fallegt að vanda elsku vinur minn ! vildir að þú sætir hérna með mér í eldhúsinu og drykkur jurtate ú garðinum mínum !! vonandi ekki svo langt þangað til.

ást til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 23.3.2009 kl. 10:12

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Verð að segja að maður saknar þess aðeins að fá ekki ný ljóð frá þér oftar. Þó ég kvitti ekki hérna reglulega, þá kíki ég allaf reglulega hér inn til að lesa falleg vel ort ljóð. Þau eru full af merkingum og meiningum.  Þetta er svona ein af síðunum sem maður skoðar til að láta sér líða betur.

Kveðjur og takk fyrir mig

"Maggi Bé"

Magnús Helgi Björgvinsson, 24.3.2009 kl. 14:26

5 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Þakka ykkur fyrir innlitið og góðu orðin ykkar. Steina mín, ég kem í sumar og fæ hjá þér eplasæder og fíflast í Tappa, meina Lappa. Rósa, takk fyrir innlitið og uppörvunina nú sem alltaf og Maggi, minn gamli vinur, ástæðan fyrir ljóðleysi er kanski sú að ég er að semja texta fyrir nokkuð marga menn út í bæ sem eru að fara í upptökur. Kanski læðist inn hér eitt og eitt og þakka þér fyrir innlitið nú sem alltaf. Ég þyrfti að vera duglegri að láta vita þegar ég kíki á þig...

Guðni Már Henningsson, 24.3.2009 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband