Snilld!!

idi amin

Það sem drendurinn hafði að segja: "Það er greinilega ekki hægt að treysta þeim hjá Hvíta Húsinu fyrir svona upplýsingum því ég ítrekaði að þetta væri leynilegt númer, sem þeir mættu alls ekki láta frá sér," segir Vífill. Það er greinilegt, ekkert að treysta þessum fírum. Legg til að hæstvirt Alþingi mótmæli þessum vinnubrögðum. Annars reyndi ég í gamla daga að hringja í Idi Amin. Og það oftar en einusinni. Við náðum inn í höllina en kallinn kom ekki í símann, það ´mætti einnig taka það upp á Alþingi þó langt sé um liðið og kallinn sofnaður fyrir eilífð. En ég hef ekki náð mér enn vegna þessarar höfnunar..


mbl.is Skagapiltur pantaði viðtal við Bush
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgerður

Það besta við þetta allt saman, var djókið í íslensku fréttamönnunum (stöð 2) því báðar stöðvar voru með viðtal við þennan tiltekna dreng, og á stöð 2 var hann ljóshærður og sagðist heita Vífill Atlason, en í viðtalinu hjá RUV var hann dökkhærður (greinilega allt annar maður) og hét líka Vífill Atlason

Ég hélt fyrst að ég hefði tekið svona ílla eftir, og kíkti inn á netið til að vera viss. Er nefnilega hársnyrtir að mennt og tek "alltaf" eftir hári á fólki. Og þetta var bara ekki að passa haha.

Ásgerður , 7.12.2007 kl. 09:02

2 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Þessi var góður....fæ enn meira álit á þessum dreng(jum)

Guðni Már Henningsson, 7.12.2007 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband