3 gamlir útvarpsţćttir um Van Morrison

  van morrison

Einhverntímann fyrir langalöngu flutti ég ţrjá ţćtti um Van Morrison. Hér eru ţeir í drögum ađ handriti, óritskođađir!! Ţví gćti veriđ villa hér og ţar en vona samt ekki.

Góđan dag góđir hlustendur rásar tvö. Guđni Már Henningsson heiti ég. Ţegar ljósiđ skín nefnast ţrír ţćttir um tónlistarmanninn írska Van Morrison sem verđa á dagskrá rásar tvö um páskana og ţetta er fyrsti ţátturinn. Van Morrison hefur aldrei passađ inní breiđstrćti rokksins. Hann hefur ekki átt lag á topp fjörutíu í meira en tuttugu og fimm ár, en samt sem áđur er hann einn áhrifamesti listamađurinn í rokk sögunni. Írsk gođsögn sem  hefur rödd sem hljómar eins og afkvćmi Dylan Thomas og Billie Holiday ef slíkt afkvćmi vćri til.

Van Morrison fćddist 31 ágúst 1945 í Belfast Norđur Írlandi. Skírnarnafn hans er George Ivan. Fađir hans var mikill áhugamađur um bandarískan blús og jass og Gerge Ivan ólst upp viđ ţađ ađ hlusta á menn einsog Leadbelly og Hank Williams.   Sína fyrstu upplifun í tónlist rekur Van Morrison aftur til tveggja ára aldurs. Ţá var fađir hans ađ spila MAHALIA JACKSON og  drengurinn ungi segist hafa öđlast trúarlega alsćlu viđ  ţađ ađ heyra í ţessari miklu söngkonu. Kanski ţessi mikla söngkona hafi sáđ ţví frći í brjóst unga sveinsins sem síđar varđ ađ mikilli  trúarsannfćringu og kom síđar oft fram í listsköpun hans.

Hann gleypti semsagt í sig blökkumannatónlist međ móđurmjólkinni og ungur fór hann ađ herma eftir. Hann hćtti í skóla 15 ára gamall tilađ helga sig tónlistinni. Lćrđi sjálfur á gítar og sótti um starf gítarleikara í írskri ungmennasveit, en var sagt ađ fyrir vćru nokkrir slíkir og ţví enginn ţörf fyrir hann. Gerge Ivan sneri ţá heim en keypti sér saxófón á leiđinni. Ţremur vikum síđar gékk hann í hljómsveitina sem saxófónleikari.   Nokkrum árum síđar  eđa á árinu 1963 var hann kominn í hljómsveitina Them.  Ryţmablúsband sem fljótlega varđ gífurlega vinsćlt í Belfast. Them gaf út nokkrar smáskífur um miđjan áratuginn, ţarámeđal Baby please don't go og here comes the night. Báđar ţessar smáskífur komust inná topp tíu á Bretlandi. Hljómsveitin dreif sig til Ameríku og lag Morrisons GLORIA varđ ţjóđsöngur ţarlendra bílskúrsbanda.

Lag 1. (af Them)  GLORIA.

  Ţetta var hljómsveitin Them međ lag Morrisons Gloria. Sú hljómsveit sendi frá sér tvćr breiđskífur. En Morrison leysti bandiđ upp og hefur ekki síđan veriđ í hljómsveit. Hann sneri aftur til Belfast međ framtíđina óráđna. Ţá fékk hann sendan í pósti flugmiđa til Bandaríkjanna frá manni nokkrum sem hét Bert Berns. Sá hafđi unniđ talsvert međ Them og nú vildi hann fá Van yfir og gera hann ađ stjörnu og gefa út nokkrar smáskífur međ honum. Van ţáđi bođiđ og byrjunin lofađi góđu.  Brown eyed girl komst inná topp tíu í Bandaríkjunum og var upphafiđ á sólóferli Van Morrisons.

Lag tvö: ( af Bang masters) BROWN EYED GIRL.

Ţetta var fyrsta smáskífa Van Morrison, lagiđ Brown eyed girl. Mrrison tók upp nokkur lög fyrir Bert Berns og hafa ţau komiđ út á stórum plötum undir ýmsum nöfnum. Líklega er safniđ BANG MASTERS best, en einnig hafa sést nöfn einsog Blowin your mind, the best of Van Morrison og T.B. Sheets. Samnefnt lag er mikil og svakaleg tónsmíđ um berkla. Ţegar ađrir sungu All you need is love söng Van Morrison T.B. Sheets.

Lag 3  (af Bang masters)  T.B. SHEETS.

Ţarna heyrđum viđ hinn magnađa blús Morrisons T.B. Sheets.

Fljótlega slitnađi uppúr samvinnu ţeirra Bert Berns og Van Morrison gerđi samning viđ Warner brćđur. Á ţví frćga ári 1968 hóađi hann saman nokkrum jassleikurum og fór međ ţá í hljóđver. Ţar tók hann upp sína eiginlegu fyrstu stóru plötu og nefndi hana Astral Weeks.  Ţar má segja ađ lagiđ MADAM GEORGE sé hápunkturinn. Margir hafa spáđ í ţá kerlingu og ´bent á  ađ ţessi Madam beri sama heiti og flytjandinn sjálfur, ţar ađ segja George. Strax á ţessari plötu sćkir hann yrkisefni sitt í bernskuslóđirnar í Belfast, Madam George býr  í hverfinu hans og ţar má heyra ýmis götunöfn nefnd, og ţar á međal Cyprus Avenue.

Lag 4 (af Astral Weeks) CYPRUS AVENUE

Ţetta var lagiđ Cyprus Avenue af fyrstu plötu Van Morrisons Astral Weeks. Eftir útkomu hennar var Morrison talinn einn af mest skapandi listamönnum tímabilsins og ć síđan hefur ţessi plata veriđ nefnd ţegar talađ er um bestu plötur rokksins.   

Sýruhausar tóku hana međ valdi en Morrison var ţá og er enn mikill andstćđingur hverskonar eiturlyfja og alkóhóls.

Tveimur árum síđar sendi Van Morrison frá sér plötu sem átti eftir ađ kćta ađdáendur og gagnrýnendur. Ţessi plata heitir Moondance og einsog á Astral Weeks samdi hann sjálfur allt efni og  útsetti. Textarnir eru myrkir, rómantískir og miklar sjálfspćlingar. Og ţetta ţrennt hefur lengi  fylgt honum.

Lag (af Moondance) Into the mystic.

Ţetta var lagiđ Into the mystic af annarri sólóplötu Van Morrisons, Moondance.

Á sama ári sendi hann frá sér plötuna His band and the street choir og fékk hún slćmar viđtökur; ţótti ekki góđ eftir tvćr afburđaplötur. Samt sem áđur er ađ finna á ţeirri plötu eitthvert vinsćlasta lag Morrisons, Domino.

Lag 6 (af  Best of) Domino.

Domino af plötunni His band and the street choir. Ţarna var Morrison farin ađ nota bakraddasöngkonur og hornaspil og sóltónlistinn alltumlykjandi. Á nćstu plötu voru allt öđruvísi tónar. Ţá leitađi hann í írskan uppruna sinn og samdi ljóđ til ţáverandi konu sinnar Janet Planet. Heyrum titillag plötunnar, Tupelo Honey.

Lag 7 (af Tupelo Honey) Tupelo Honey.

Á sama tíma og hann var ađ vinna viđ Tupelo Honey jammađi hann einnig međ einni af gömlu hetjunum sínum, blúsaranum John Lee Hooker. Og ţađ áttu ţeir eftir ađ gera margsinnis.Komum ađ ţví betur síđar.

1972 kemur svo út fimmta plata Van Morrisons og nefnist hún St. Domic´s Preview. Ţar er hann á svipuđu róli og á Tupelo Honey. Áhrifin sótt í írska tónlist og í sóliđ bandaríska. Ţessi plata naut gífurlegra vinsćlda og var tilađmynda sex mánuđi á bandaríska vinsćldalistanum. Hápúnktur ţeirrar plötu er hiđ ellefu mínútna lag Listen to the lion, en vegna hins nauma tíma okkar, sćttum viđ okkur viđ styttri tónsmíđ,engu lakari, sem ber nafniđ Gypsy.

Lag 8 (af St. Dominic Preview.) GYPSY.

Ţarna heyrđum viđ lagiđ Gypsy af plötunni St. Domic´s Preview.

Ári síđar leit dagsljósiđ platan Hard nose the highway. Ţar spilar međ honum Oakland sinfóníuhljómsveitin. Um sama leit á Van Morrison viđ erfiđleika ađ etja í einkalífi sínu. Hann og Janet Planet skilja eftir ađ hafa átt fimm ár saman og eina dóttur sem nefnist Shana. Á seinni árum hefur hún oft komiđ fram međ föđur sínum, bćđi á tónleikum og á plötum. Van Morrison var  ţekktur fyrir magnađa tónleika og ţađ var ţví ekker skrítiđ ađ í mars 1974 skyldi hann senda frá sér tónleikaplötu. Sú heitir It´s too late to stop now og er tvöföld. Međ honum á ţessari plötu er sveitin Caledonian soul orchestra sem hađi spilađ međ honum undanfarin ár. Um ţađ leiti sem ţessi plata kemur út leysir hann Caledonian soul bandiđ upp. Viđ skulum heyra  gamla Them smellinn  Here comes the night  af ţessari ágćtu plötu.

ag 9 (af It´s too late to stop now ) HERE COMES THE NIGHT.

Í nóvember sendir hann svo frá sér frábćra plötu sem nefnist Veedon Fleece. Mjög svo persónulegir textar einkenna hana og svo má í rauninni einnig segja um tónlistina sjálfa. Ţađ er skrýtiđ ađ ţessi plata hlaut frekar drćmar undirtektir og seldist illa. Heyrum eitt ágćtis tóndćmi af Veedon fleece, lagiđ  Come here my love.          

Lag 10 (af Veedon fleece)  COME HERE MY LOVE.

Ţetta var Van Morrison af plötunni Veedon Flece og lagiđ  Come here my love.

Eftir ţetta tók Van Morrison sér ţriggja ára leyfi frá plötusmíđum. Og ţađ var ekki fyrr en í maímánuđi 1977 ađ út kom platan Period of transition og fólk gat heyrt ađ eitthvađ truflađi meistarann, ţví platan stóđ engan veginn undir vćntingum.

Nćsta plata sem kom út ári síđar ţótti öllu betri en enganveginn í sama gćđaflokki og flestar plötur hans. Ţessi plata nefnist Wavelength og komst í tuttugasta og sjöunda sćti breska listans.

Ţađ var ekki fyrr en ári síđar, er platan Into the music kom út ađ menn tóku gleđi sína á ný. Mjög trúarleg og einlćg plata frá meistaranum. Á ţessu ári sendi Bob Dylan frá sér plötuna Slow train coming og ţóttu ţeir sálarbrćđur höggva í svipađan knérunn. Nema hvađ Morrison prédikađi fyrirgefningu í stađ ragnaraka einsog Dylan gerđi. Heyrum lagiđ  Full force gale af plötunni Into the music.

Lag 11 (af Into the music ) FULL FORCE GALE.

Ţetta var lagiđ  Full force gale af ţeirri ágćtu plötu Into the music. Trú og andlegir hlutir hafa ć síđan spilađ stóra rullu í lífi hans og list.

Á nćstu plötu sem heitir Common one og kom út 1980 var list hans orđin enn andlegri og jafnframt meira keltnesk. Ţađ  hefur veriđ ţannig ć síđan, ýmist er hćgt ađ flokka plötur hans sem keltneskar eđa soul blues skotnar. Eđa svo gott sem. Oft blandar hann ţessu saman á listilegan hátt svo úr verđur einstök blanda sem enginn getur boriđ fram nema Van Morrison.

1982 kemur út platan Beautyful Vision. Enn er sálartónlistin og sú írska í heilögu hjónabandi. Van Morrison syngur einnig á ţessari plötu um ćskuár sín í Belfast og hefur gert svo á nánast öllum plötum sínum síđan. Ţađ er ađ segja, á öllum plötunum er hćgt ađ finna lítinn sjálfsćvisögulegan kafla. Beauityful vision er hreint mögnuđ plata og ţví til sönnunar er hér upphafslag plötunnar, Celtic ray.

Lag 12 (af Beautiful vision) CELTIC RAY.

Ţetta var lagiđ Celtic Ray af plötunni Beautiful Vision frá árinu 1982. Viđ skulum heyra eitt lag í viđbót af ţessari plötu, lagiđ Cleaning windows, en ţar í fjallar hann um ćsku sína og tónlistarást í Belfast forđum daga.

Lag 13 (af Beautiful Vision) CLEANING WINDOWS.

Ţetta var lagiđ Cleaning windows af ţeirri ágćtu plötu Van Morrisons Beautiful Vision.

Og ţá erum viđ stödd á ţví ágćta ári 1983. Ţá sendir Morrison frá sér einn gćđagripinn enn, plötuna Inarticulate speech of the heart. Sú sver sig í ćtt viđ uppruna meistarans og er mjög keltnesk, eđa kanski réttara sagt írsk. Oft hljóma lögin einsog gömul írsk ţjóđlög en eru ţó öll eftir Morrison sjálfann. Gott dćmi um ţađ er lagiđ Irish heartbeat.

Lag 14 (af Inarticulate speech of the heart) IRISH HEARTBEAT.

Ţetta var lagiđ Irish heartbeat af plötunni ágćtu Inarticulate speech of the heart. Ţađ er ekki hćgt ađ skilja viđ ţessa plötu án ţess ađ heyra titillagiđ sjálft.

Lag 15 (af Inarticulate speech..) INARTICULATE SPEECH OF THE HEART NO.2.

Ţarna heyrđum viđ titillag plötunnar Inarticulate speech of the heart međ Van Morrison.

Nćsta plata hans kom út ári síđar og var sú tekin upp á hljómleikum í fćđingarborg meistarans, Belfast og nefnist hún Live at the grand opera house. Van Morrison var ţá kominn töluvert langt frá George litla Ivan sem hljóp heim til sín í matartímum til ađ hlusta á gömlu svörtu blúsarana leika listir sínar af hljómplötum. Ţegar matarhléiđ var búiđ tók hann aftur til viđ ţá iđju sína ađ ţvo glugga. Ţessi plata kom út í mars fyrir fimmtán árum og ţykir enn sína hversu magnađur mađurinn er á hljómleikum. En viđ geymum okkur ţessa plötu um stund, ţví síđar átti hann eftir ađ senda frá sér enn magnađri hljómleikaplötu og af henni spilum viđ ţegar viđ komum ađ henni í tíma. Í maí ţetta sama ár söng hann međ Bob Dylan á Wembley leikvanginum, lagiđ It´s all over now baby blue eftir Dylan, en ţetta sama lag hafđi gamla bandiđ hans, Them gefiđ út   mörgum árum  áđur.

1985 sendir hann svo frá sér plötuna A sense of wonder.

Ţá, og kanski miklu fyrr, má líta á textagerđ hans sem fullburđa ljóđ. Enn fjallar hann í ljóđum sínum um trú, dulúđ og rómantík.

Á plötuumslaginu ţakkar hann Ron Hubbard, stofnanda Vísindakirkjunnar fyrir sig, en Van hafđi eithvađ veriđ ađ dufla viđ ţá kirkju, en stuttu síđar sór hann allt slíkt af sér.

En hlýđum á titillag plötunnar, A sense of wonder.

Lag 16 (af A sense of wonder) A sense of wonder.

Ţetta var titillag plötunnar A sense of wonder.

Ári síđar sendir Van Morrison svo frá sér einn gćđagripinn enn,

No guru, no method no teacher. Međ titlinum sver hann af sér öll tengsl viđ Vísindakirkjuna. Fyrsta lag plötunnar nefnist Got to go back, og eins og svo oft er hann ađ rifja upp bernsku sína. Ţar nefnir hann á nafn snillinginn Ray Charles en Morrison hefur tekiđ urmul laga sem Ray Charles hefur sungiđ.

Lag 17. (af No guru, no method no teacher)  Got to go back.

Ţetta var lagasmíđin ágćta got to go back.

Nú fór í hönd eitthvert al besta tímabil Van Morrisons og höfđu ţó tímar ekki veriđ slćmir.

Í júní 1987 kom hann fram á Glastonbury ogţremur mánuđum síđar kom út platan ljúfa og vandađa Poetic champion compose.

Ţar var Van í mjög afslöppuđu formi og hvert lagiđ á fćtur öđru hreinasta eyrnakonfekt. Byrjum á ţví ađ heyra magnađa útsetningu á  laginu Sometimes I feel like a motherless child.

Lag 18 ( af Poetic champions compose) SOMETIMES I FEEL LIKE A MOTHERLESS CHILD.

Ţetta var útsetning Van Morrisons á Sometimes I feel like a motherless child. Viđ skulum heyra eitt lag í viđbót af ţessari ágćtu plötu, ţađ heitir Alan Watts blues.

Lag 19 (af Poetic champions compose) ALAN WATTS BLUES

Alan watts blues af plötunni Poetic champions compose frá árinu 1987.

Ári síđar steig Van Morrison svo skrefiđ til fulls og sendi frá sér hreinrćktađan írska tónlist  . Hann fékk til liđs viđ sig írska ţjóđlagabandiđ The Chieftains og saman hljóđrituđu ţeir plötu sem nefndist Irish heartbeat. Öll lög plötunnar eru írsk ţjóđlög utan tvö eftir Van Morrison. Viđ skulum heyra írska ţjóđlagiđ Carrickfergus í flutningi Van Morrisons og The Chieftains

Lag 20 (af Irish heartbeat) Carrickfergus.

Ţarna heyrđum viđ írska ţjóđlagiđ dapurlega Carrickfergus. Ekki eru öll lög plötunnar jafn döpur og ţví til sönnunar er hér smelliđ lag sem heitir, I´ll tell me ma.

Lag 21 (af Irish heartbeat) I´ll tell me ma.

Af plötu Van morrison og The Chieftains, lagiđ I´ll tell me ma.

Ţessi plata kom út í júlí 1988.  Ári síđar leit enn eitt meistarastykkiđ ljós dagsins, sú marglofađa plata Avalon sunset. Á ţessari plötu rekur hvert gćđalagiđ annađ, og ef vel ćtti ađ vera ţyrftum viđ ađ spila alla plötuna. Ţarna söng Cliff Richard međ honum lagiđ Whenever God shines his light og ţarna er lagiđ sem Rod Steward tók uppá sína arma, Have I told you lately. Ţessi plata náđi ţrettánda sćti breska listans. Viđ skulum heyra tvö log af ţessari ágćtu plotu, fyrst Coney Island og síđan I´m tired Joey boy.

Lög 22 og 23 (af Avalon Sunset)  CONEY ISLAND, I´M TIRED JOEY BOY.

Ţarna heyrđum viđ tvö lög af plötunni fínu Avalon sunset frá árinu 1989 , Coney Island og I´m tired Joey boy. Á ţessari plötu lék međ Van Morrison Hammondorgelleikarinn snjalli Georgie Fame og sér ekki enn fyrir endann á samstarfi ţeirra. Ţađ má segja ađ ţessi plata sé einn sálmur frá   upphafi til enda. Have I told you lately er einn allsherjar óđur til almćttisins, Whenever God shines his light og When will I ever learn to live in God eru titlar sem segja margt. Í nóvember ţetta sama ár , á hljómleikum í New York, trítlar uppá sviđiđ til hans, hans aldni vinur og Búggímeistari, John Lee Hooker og saman taka ţeir Boom Boom og It serves me right to suffer.

1990 kemur svo loks út best of plata međ Van Morrison og hefur sú plata selst  í einhverjum milljónum eintak og er enn í fullri sölu. Um haustiđ 1990 sendir svo Morrison frá sér plötuna Enlightenment og náđi hún ađ klifra uppí fimmta sćti breska listans. Enn og aftur var Morrison orđinn međal ţeirra vinsćlustu og hafa comeback hans orđiđ ćđi mörg.

Ţegar voriđ kom til Englands nćsta ár sendi Tom Jones frá sér smáskífu sem nefndist Carrying a torch. Lagiđ var eftir Van og einnig önnur fjögur lög sem síđar komu út á samnefndri stórri plötu. Morrison spilađi einnig á ţessari plötu Tom Jones og um haustiđ söng hann međ   John Lee Hooker á plötu hans Mr. Lucky, lagiđ I cover the waterfront.

Lag 24(af Mr. Lucky) I cover the waterfront.

John Lee Hooker og Van Morrison í blúsnum fína I cover the waterfront.  Hammondspilari Vans, Gergie Fame hefur einnig sent frá sér sólóplötur og á einni ţeirra, sem heitir Cool cat blues var Van Morrison međ honum. Saman sungu ţeir gamla Morrison standardinn Moondance.

Lag 25 (af COOL CAT BLUES)  MOONDANCE.

Um haustiđ 1991 kom svo út tvöföld plata frá meistaranum og nefndist hún Hymns to the silence og einnig hún fór í fimmta sćti vinsćldalistans. Ţar tekur hann lagiđ sem Ray Charles hefur gert ódauđlegt, I cant stop loving you.

Lag 26. (af Hymns to the silence) I cant stop loving you.

Van morrison og I can´t stop loving you af tvöföldu plötunni Hymns to the silence.  Í ţessu lagi naut hann ađstođar The Chieftains sem áđur höfđu spilađ međ honum á Irish Heartbeat.

Alls konar tónlistarstefnur er ađ finna á ţessum plötum, jass, blús, kontrý,sóul og írska tónlist. Ţetta eru raunar ţćr stefnur sem Van Morrison hefur hvađ oftast fengist viđ auk rokksins og ryţmablúsins. Heyrum eitt lag enn af Hymns to the silence, Quality street.

Lag 27. (af Hymns to the silence) Quality street

Quality street af Hymns to the silence frá árinu 1991. Nćsta ár var frekar tíđindalítiđ hjá vorum meistara, en sama er ekki hćgt ađ segja um áriđ ţar á eftir. Í janúar 1993 er hann tekinn inn í ţann eđla  félagsskap, Rock and roll hall of fame, en vinur vor mćtti ekki á hótel Astoria í New york ţar sem seremónían fór fram. Í febrúar var hann međ tónleika í Dublin og til ađ syngja sönginn um Gloriu kallađi hann til liđs viđ sig Bono og Larry Mullen úr U2,  Johnny Cash, Bob Dylan, Elvis Costello, Steve Earle, Steve Winwood, Chrissie Hynde, Nanci Griffith, Jerry Lee Lewis og Kris Kristofferson. Gaman hefđi veriđ ađ gćla viđ Gloriu ţá.

Í Júní kemur svo út platan Too long in exile og fer hún uppí fjórđa sćti vinsćldalistans. Ţar er Van Morrison í blús og ryţmablús buxunum sínum. Hér er stórskemmtilegur gripur og ţađ sem kanski gerir hann svolítiđ öđruvísi en hinar plöturnar hans, er ţessi ryţmablús og hversu mörg lög eru ekki eftir hann, heldur gamlir standardar. Enn vottar hann Ray Charles virđingu sína, međ ţví ađ taka lag eftir Doc Pomus sem Ray hefur gert ódauđlegt. Lonely avenue.

Lag 28 (af Too long in exile) LONELY AVENUE.

Lonely avenue af Too long in exile. Á ţessari plötu kemur John Lee Hooker enn viđ sögu. Saman kyrja ţeir Gloriu. Á nćstu plötu Van Morrisons, tónleikaplötunni  A night in San Francisco birtist einnig gamli mađurinn međ títtnefnda Gloriu. Heyrum lagiđ......

Lag 29. (af A night in san francisco).........

Ţetta var lagiđ...........af tónleikaplötunni A night in San Francisco. Alveg mögnuđ plata frá meistaranum.

24. júní 1995 kemur svo enn ein  platan. Days like this. Enn og aftur heldur Morrison sig viđ fimmta sćtiđ. Á plötuumslaginu má sjá Morrison ásamt tveimur hundum og hinni íđilfögru unnustu sinni Michelle Roca.

1996 kemur svo út jassplata, sem var einskonar samvinnuverkefni Morrisons og Gergie Fame. Hlaut sú plata misjafnar undirtektir og kanski er ekki hćgt ađ telja hana međ plötum meistarans. 1997 spilar hann og syngur inná plötu vinar síns John Lee Hooker ásamt ţví ađ senda frá sér plötun The healing game.    Sú plata er hinn vćnsti gripur, afslöppuđ og vönduđ. Sem fyrr nýtur hann ađstođar George Fame og blástursleikarans Pee Wee Ellis sem lengi hefur starfađ međ honum. Viđ skulum heyra lag sem heitir ţví kunnuglega nafni Piper at the gates of dawn. Enn má greina keltnesk áhrif.

Lag 30. ( af the Healing game) Piper at the gates of dawn.

Ţetta var af plötunni The Healing game og lagiđ Piper at the gates of dawn.

Í fyrra kom út tvöfaldur diskur frá Van Morrison sem heitir The Philosophers stone og inniheldur hann  áđur óútgefinn lög frá  tímabilinu 1971 til 1988. Fínasta plata, en tímans vegna verđum viđ ţví miđur ađ sleppa henni. Og núna í mars 1999 leit svo dagsins ljós nýjasta afurđ kappans. Back on top nefnist hún og er hreint mögnuđ hljómskífa. Ţar spilar hann soul í anda Sam gamla Cooke og gamaldags rokk ásamt öđru fínu efni. Lagiđ Precious times hefur hljómađ nokkuđ oft hér á rás tvö undanfariđ og er nokkuđ ađ ţví ađ heyra ţađ einusinni enn?

Lag 31 (af Back on top) Precious time.

Ţetta var ţriđji og síđasti ţátturinn um írska tónlistarmanninn Van Morrison og bráđum fjörutíu ára tónlistar sögu hans. Vona ég ađ hlustendur hafi vel kunnađ ađ meta tónlist ţessa mikla manns. Guđni Már Henningsson heiti ég og ţakka fyrir hlustunina.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Van Morrison ,, andstćđingur hverskonar eyturlyfja og alkohols ". Ţađ kemur mér verulega á óvart vegna ţess ađ ég hélt ađ hann hefđi í gegn um tíđina veriđ nokkuđ gefinn fyri sopann ??  Ég hlustađi á ţessa ţćtti um meistarann á sínum tíma og gaman er ađ rifja upp textann hér aftur. Mćttum viđ fá meira ađ heyra ???

Stefán (IP-tala skráđ) 14.11.2007 kl. 12:08

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband