Ský

  ský í ljósheimum

Hér er eitthvað sem alls ekki passar

einsog flatbotna skór með reimum

einsog fölir framsettir rassar

og feikn af skýjum í Ljósheimum.

 

Ég  finn að fjöldann hér vantar

af fallegum marglitum geimum

en þjónninn af þjórurum pantar

þrefaldann í Ljósheimum.

 

Hún er falleg fegurðin sem sést ei

og forustusauðina við teimum

öll jáin sem við áttum verða eitt nei

og enn er skýjað í Ljósheimum.

 

Sauðirnir eru svartir í framan

og svolgra vín sem við eimum

brátt verður græskulaust gaman

í grámyglu í Ljósheimum.

 

Í kór með allskonar kisum

við kyrjum mjálmum og breimum

með dvergum og dálitlum risum

og það dimmir í Ljósheimum.

 

Og efalaust eru einhverjir að tala

með útlenskum aflóga hreimum

um sumarnótt og norðlægan svala

og um skýjafar í Ljósheimum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Sæll og blessaður

Engin ský á himni hjá grillaranum. Ætli þetta sé hvalkjötsbuff sem hann er að grilla? Sennilega er hann inní Ljósheimum.

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 25.4.2009 kl. 23:44

2 Smámynd: Brattur

Gaman af þessu... og svo yrkir þú þannig að það er alltaf eitthvað undirliggjandi sem maður verður hugsi yfir...

Brattur, 26.4.2009 kl. 14:49

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.4.2009 kl. 13:41

4 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Mjög draumkennt á fallegan máta.

Bryndís Böðvarsdóttir, 5.5.2009 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband