Færsluflokkur: Bloggar

Sá ekki til sólar

Rakst á þetta ljóð í kirnu!! Man ekki hvort ég hef birt það áður, en læt það flakka...

 newton_strip

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sá ekki til sólar
né ský á himni
fann ekki frerann
fimbulkaldann
dvaldi ei hjá Drottni
dýrðar ljómans
leit ekki lífið
né leik að kveldi
naut ekki nátta
í niði köldu
uns kom ég kaldur
að krossins tré
kærleikans Kristur
kyssti frerann
sól í suðri
skein á himni
lítill ég laut
lífsins herra. 


Redemption song

bob marley

 

Old pirates, yes, they rob I;
Sold I to the merchant ships,
Minutes after they took i
From the bottomless pit.
But my hand was made strong
By the and of the almighty.
We forward in this generation
Triumphantly.
Wont you help to sing
These songs of freedom? -
cause all I ever have:
Redemption songs;
Redemption songs.

Emancipate yourselves from mental slavery;
None but ourselves can free our minds.
Have no fear for atomic energy,
cause none of them can stop the time.
How long shall they kill our prophets,
While we stand aside and look? ooh!
Some say its just a part of it:
Weve got to fulfil de book.

Wont you help to sing
These songs of freedom? -
cause all I ever have:
Redemption songs;
Redemption songs;
Redemption songs.
---
/guitar break/
---
Emancipate yourselves from mental slavery;
None but ourselves can free our mind.
Wo! have no fear for atomic energy,
cause none of them-a can-a stop-a the time.
How long shall they kill our prophets,
While we stand aside and look?
Yes, some say its just a part of it:
Weve got to fulfil de book.
Wont you help to sing
Dese songs of freedom? -
cause all I ever had:
Redemption songs -
All I ever had:
Redemption songs:
These songs of freedom,
Songs of freedom.


Bob Marley

bob marley 2 

Það hafa komið út næstum óteljandi  plötur og geisladiskar með Bob Marley frá fyrstu árum hans sem tónlistarmaður. Útgáfurnar hafa flestar verið illa unnar og upplýsingar sem fylgt hafa með verið rangar og misvísandi. Þetta á sérstaklega við um upptökur sem Bob Marley og hljómsveit hans The Wailers gerðu með hinum dularfulla Lee Scratch Perry, en með honum tóku þeir upp næstum sextíu lög seint á sjöunda áratuginum og snemma á þeim áttunda. Margar ólöglegar útgáfur hafa séð dagsins ljós og því hafa þessar hljóðritanir ekki notið þeirrar virðingar sem þeim ber. Því ber að fagna því að nú loksins hafa þessar  hljóðritanir verið gefnar út með þeirri virðingu sem þeim ber. Útgáfufyrirtækið Trojan records hefur farið meistarahöndum um þessa dýrgripi og notað alla nýjustu tækni til að lögin hljómi sem best. Afraksturinn er að finna í sex diska pakka sem ber nafnið The complete Upsetter Collection.  Í þessum kassa er að finna allar þær upptökur sem Bob Marley gerði með Lee Perry. Lee Perry var þá með með útgáfu og hljómsveit sem hann kallaði The Uppsetter. Fyrsta lagið sem Perry hljóðritaði með Bob Marley heitir Try me.  Þetta lag vakti töluverða athygli á Marley og hans músik og samstarf hans og Perry stóð yfir í all langan tíma. Rétt áður en hljómsveitin Wailers lagði af stað í heimsreisu árið 1972 hljóðrituðu þeir lagið Soul Rebel sem Marley og Perry sömdu saman. Heimurinn var tilbúinn fyrir Bob Marley and The Wailers og framundan var heimsfrægð. Annað gott við þennan kassa frá Marley er að hann kostar lítið meira en venjulegur tvöfaldur diskur.  Menn eru ekki að smyrja á góðgætið mörgum aurum  og slíkt er orðið fátítt þessa dagana.


Þú ert hér.

blues 3 

 

Mig langar að

syngja þér söng 

                 

héðan

því þú ert hér

 

síðan líðum við  saman

inn dalinn

upp á fjallsbrún

 

þaðan förum við

með skýjunum


Ei meir.

 ekkert

 

 

 

 

 

 

Ég svara því sem þú sagðir
ég svara því seinna í dag
ég svara því úti bláinn
og svo svara ég aldrei meir.

Ég gaf þér allt sem þú gafst mér
ég gaf þér allt sem  var
ég gef þér það sem við áttum
og svo gef  ég þér aldrei meir.

Og víst var hún þung mín byrði
að þekkja skil á nóttu sem degi
og þó ég svaraði og þó ég spyrði
yrði það aldrei nokkurs virði.

Ég sendi þér ljóð mín úr laumi
ég lá svo vel við höggi
ég sendi þér geisla frá glösum
og svo geislar þú aldrei meir.

Hvert sem þú ferð þar var ég
og hvar sem þú náttar þar svaf ég
hvar sem þú hvílist þar lá ég
hvar sem þú verður þar var ég.

Og víst var hún þung mín byrði
að þekkja skil á nóttu sem degi
og þó ég svaraði og þó ég spyrði
yrði það aldrei nokkurs virði.

Ég get séð myrkur að morgni
og mánann um bjartan dag
ég heyri en hlusta þó aldrei
ég horfi en sé þig ei meir

Manstu þá morgna er hurfu
manstu það sem ég ekki var
ekkert er heilagt né hlálegt
og hingað kem ég aldrei meir.

Og víst var hún þung mín byrði
að þekkja skil á nóttu sem degi
og þó ég svaraði og þó ég spyrði
yrði það aldrei nokkurs virði.



Not dark yet.

 Hér er einn snilldartextinn enn frá meistaranum. Ég myndi ekki kvarta þó að hann spilaði þetta í Egilshöllinni....

dylan

 

 

 

 

Shadows are falling and I've been here all day
It's too hot to sleep time is running away
Feel like my soul has turned into steel
I've still got the scars that the sun didn't heal
There's not even room enough to be anywhere
It's not dark yet, but it's getting there

Well my sense of humanity has gone down the drain
Behind every beautiful thing there's been some kind of pain
She wrote me a letter and she wrote it so kind
She put down in writing what was in her mind
I just don't see why I should even care
It's not dark yet, but it's getting there

Well, I've been to London and I've been to gay Paree
I've followed the river and I got to the sea
I've been down on the bottom of a world full of lies
I ain't looking for nothing in anyone's eyes
Sometimes my burden seems more than I can bear
It's not dark yet, but it's getting there

I was born here and I'll die here against my will
I know it looks like I'm moving, but I'm standing still
Every nerve in my body is so vacant and numb
I can't even remember what it was I came here to get away from
Don't even hear a murmur of a prayer
It's not dark yet, but it's getting there.


Meiriháttar...

 paul simon

 

 

 

 

 

Frábært að einn úr stórmeistaradeildinni í viðbót skuli vera á leiðinni til landsins. Bara í ár erum við að fá Bob Dylan, Eric Clapton, John Fogerty og Paul Simon! Þvílík dýrð!Ekki er langt síðan að Van Morrison hélt frábæra tónleika hérna, Deep purple, Coldplay, James Brown, Ray Davies, Robert Plant  og í gær voru Low með tónleika á Nasa. Og við erum orðin svo góðu vön að ég er örugglega að gleyma einhverjum stórstjörnum. Ekki má gleyma frábærum Þursa tónleikum í höllinni, Megas var með stórtónleika svo og Rúni Júl. En frábært að Paul Simon skuli vera að koma. Sjáið hérna lista yfir lög, bara frá sólóferlinum:

  1. Mother and Child Reunion
   2. Loves Me Like a Rock
   3. Me And Julio Down By The Schoolyard
   4. Duncan
   5. Kodachrome
   6. 50 Ways To Leave Your Lover
   7. Slip Slidin' Away
   8. Gone At Last
   9. Something So Right
  10. Late In The Evening
  11. Hearts And Bones
  12. Take Me to the Mardi Gras
  13. That Was Your Mother
  14. American Tune
  15. Peace Like A River
  16. Stranded In A Limousine
  17. Train In The Distance
  18. The Late Great Johnny Ace
  19. Still Crazy After All These Years
  20. Graceland
  21. Diamonds On The Soles Of Her Shoes
  22. The Boy In The Bubble
  23. You Can Call Me Al
  24. Under African Skies
  25. The Obvious Child
  26. Born At The Right Time
  27. The Cool, Cool River
  28. Spirit Voices
  29. Adios Hermanos
  30. Born In Puerto Rico
  31. Quality
  32. Darling Lorraine
  33. Hurricane Eye
  34. Father & Daughter
  35. Outrageous
  36. Wartime Prayers


mbl.is Paul Simon með tónleika á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

So með Peter Gabriel

so

Sem höfuðpaurinn í Genesis á áttunda áratuginum hjálpaði Peter Gabriel framsæknu rokki í átt að, hvað getum við sagt, leikhúslegri tónlist. Á fyrstu sólóplötu sinni sem kom út 1977 fór hann inná myrkari og erfiðari  brautir. Hann fór að gera tilraunir með Avant-garde, electróníska tónlist og heimstónlistarbít. Hann hlaut mikið lof fyrir fjórar fyrstu plöturnar sínar sem allar báru nafnið Peter Gabriel og innihéldu allt þetta sem upp var talið hér að framan. Hann átti sér talsverðan hóp aðdáenda en var samt ekki í hópi með skærustu stjörnum rokksins. Það var ekki fyrr en platan So kom út að Peter Gabriel öðlaðist alheimsviðurkenningu.

Um sama leiti og Gabriel hóf sína einherjamennsku kom hann á fót tónleikum þarsem hann hóaði saman heimstónlistarfólki tilað kynna það fyrir vesturlandabúum. Þetta varð að árlegum viðburði og er venjulega kallað WOMAD, World   of music, arts and dance. Á meðan Gabriel vann að sinni fimmtu plötu samdi hann einnig tónlist við kvikmyndina frábæru, Birdy. Fyrir það fékk hann mikið lof og einnig Grammy verðlaun. Hann stofnaði einnig útgáfufyrirtækið Real World til þess að brúa bilið á milli tækni og tónlistar. 1985 lauk hann við sína fimmtu plötu sem hlaut nafnið So og fyrsta smáskífan var gefin út.

Það var lagið Sledgehammer. Þetta lag fór víðast hvar í efsta sæti vinsældarlista og það var nýtt og óvænt fyrir Peter Gabriel. Þetta lag er í anda tónlistar sem Stax fyrirtækið var frægt fyrir, soul einsog Otis Redding gæti hafa sent frá sér. Glæsilegt video hjálpaði laginu til mikillar spilunar á MTV og víðar. Fyrir þetta video hlaut hann allskonar viðurkenningar.

Þriðja lag plötunnar átti einnig eftir að koma út sem smáskífa. Þar söng Gabriel með söngkonunni mögnuðu Kate Bush lag sem sýndi ljóslega að hjarta Gabriels er hjá þeim sem minnimáttar eru. Í þessu lagi er það verkalýðsstéttin sem hafði þá og hefur ekki enn alltof mikið að bíta og brenna.

Einsog með Sledgehammer var gert glæsilegt myndband við þetta lag. Þau sungu það í faðmlögum og bak við þau skall á sólmyrkvi. Eftirminnilegt myndband. Elton John sagði um Don´t give up; ég hlustaði á þetta lag aftur og aftur og hugsaði alltaf, þetta verður í lagi þetta verður í lagi, ekki gefast upp.

Mikill fjöldi góðra tónlistarmanna kom við sögu á So.  Má nefna P.P. Arnold, Laaurie Anderson, Bush, Steward Copeland, Jim Kerr úr Simple Minds og Nile Rogers. Daniel Lanois stjórnaði síðan herlegheitunum ásamt Gabriel sjálfum. Næsta lag heitir In your eyes og var einnig gefið út sem smáskífa. Það eru margir sem halda því fram að In your eyes sé eitthvert fallegasta ástarlag sem Peter Gabriel hefur samið. Þetta lag var einnig notað í kvikmynd Cameron Crows, Say anything. Youssou N´Dour syngur bakraddir í þessu lagi.

Einsog fyrr sagði kom platan út í lok maímánaðar árið 1986. Ekki tók Gabriel sér frí eftir útkomu plötunnar, heldur fór strax þann fjórða júní í tveggja vikna tónleikaferð um Bandaríkin á vegum  Amnesty Intenational ásamt meðal annara U2, Sting og Lou Reed. Í lok júnímánaðar spilaði Peter Gabriel á miklum tónleikum í London þar sem Apartheid aðskilnaðarstefnunni í Suður Afríku var mótmælt. Meðal annara listamanna á Þeim tónleikum má nefna Elvis Costello, Sade, Boy George, Billy Bragg og Sting.  Lagið   Mercy Street af So er samið í minningu skáldkonunnar Anne Sexton sem svipti sig lífi árið 1974. Stórkostlegur minnisvarði og  flutningur allur er magnaður.

Big Time var fjórða lagið af SO sem gefið var út sem smáskífulag. Einsog með fyrri smáskífulögum af So fylgdi mjög flott myndband með. Á trommunum er Steward Copeland. Þetta lag er í hálfgerðum hipphopp takti og dansvænt. Í textanum gerir Peter Gabriel góðlátlegt grín að frægð og frægðardraumum.

Fyrir smáskífurnar af þessari plötu sópaði Peter Gabriel til sín allslags verðlaunum. Don´t give up var kosið besta lagið hjá Ivor Novello, Sledgehammer fékk 10 verðlaun hjá MTV og tvenn Brit verðlaun að auki. Platan hefur selst í á annan tug milljóna. Næst síðasta lagið heitir We do what we´re told.

Plata Peters Gabriel, SO kom út árið 1986. Þó að þessi ár séu liðin frá útkomunni hljómar hún eins fersk og fín og á útgáfudegi.  Það má segja sem svo að eftir So hafi Peter Gabriel ekki verið fyrrum söngvari Genesis, heldur sjálfstæður tónlistarmaður. Í sjálfu sér er Gabriel það merkilegur listamaður að hann ætti skilið miklu ítarlegri umfjöllun en þá sem nú er gerð. Allt það sem hann hefur lagt af mörkum til meira réttlætis í heiminum er svo sérkapítuli útaf fyrir sig.

Það má með sanni segja að So hafi skilið eftir sig spor. Ekki aðeins á tónlistarsviðinu, heldur einnig í myndbandagerð.


Vegurinn.

  vegur

Hann liggur

framhjá jöklunum,fjöllunum, hverunum

framhjá fossum

hraungrýtinu og eyðisöndunum

 

framhjá regninu og sólstöfunum

framhjá fljótandi eyjum

í sjávarháska

 

framhjá vegvilltum þjóðverjum

sem ákveðnir stara

í vitlausa átt

 

framhjá fiðruðum söngvurum

með sól í goggi

og regn í stéli

 

framhjá niðurgreiddum rollum

í tonnatali

framhjá ráðvilltum hrossum

sem vita ekki lengur neitt í sinn haus

um tilgang þarfasta þjónsins

 

framhjá þorpum

sem ýmist kúra aða sprikla

framhjá frystihúsum og videoleigum

framhjá kirkjum og

kirkjugörðum

 

framhjá tröllauknu hóffari

með basalt í augum

 

framhjá höfnum

sem skarta togurum

af öllum stærðum

litlum bátum og trillum

sem vart þekkja sinn sjó

 

framhjá hafnarvoginni

með útitekinn pípureykingamann

sem æðstaprest

 

framhjá loðnudrífu

sem markar veginn

líktog steinarnir hvítu

hjá hans og gretu

 

framhjá mismunandi

úrsérvöxnum kjarriklæddum útihátíðum

með ótölulegan fjölda

rennblautra íslenskra fána

og dapurlegann sæluvikusöng

sem meiðir hlustir

 

framhjá ættarmótum með gula bláa rauða græna eða hvíta miða í treyjunni sinni

þarsem menn um stundarsakir eru ættræknir mjög

svo jafnvel jónstóri kallar fiskigunnu frænku

 

framhjá fjöllum svo ægilegum, skriðum svo bröttum

að jafnvel sólinni

verður um og ó

 

framhjá geltandi bíltíkum

og gjammandi hundspottum

með rófuna ýmist

í austur eða vestur

 

framhjá gulum einmana tjöldum

sem flagga handklæðum

og nærbuxum

í hálft stag

með hælana

þarsem tær mínar

aldrei munu

safna sandi sín á milli

 

framhjá stöðnuðum rútum

og yfirgefnum skódum

með rassinn í næsta landrover

 

framhjá víghreiðrum

innlendum og erlendum

 

framhjá brenndum bergþórshvoli

með brókarsótt

framhja hlíðunum

væmnum og grænum

 

framhjá dauðum klesstum fuglum

og krömdum músum

 

framhjá veiðivötnum

og lækjarsprænum

framhjá fúlalæk með brennisteinsfnyk

sem minnir á vel heppnað

gamlárskvöld í reykjavík

 

framhjá snjótoppum og dreifðum sköflum

framhjá traktorum og gröfum

peylóderum og vörubílum

 

framhjá hvítum risaeðlueggjum

 

framhjá sögualdabæjum

sem lifað hafa af falsanir

súrheysturnum og minkabúum

bensínsjoppum og hamborgurum

 

tómum dósum brotnum flöskum

sem muna mega sitt innihald fegurra

framhjá puntstráum og fífu

sóleyjum og fíflum

 

framhjá beljum og hænum

heimskari en naut

er farmallinn

úrsérgenginn og einskisnýtur

 

framhjá undarlegri örvænting

dónalegri undanlátssemi

og háttvísi á hæsta stigi

 

bílaverkstæðum sem

opin eru

allan sólarhringinn

 

sálarkvöldum manneskjum

og einskærri ást

jafnvel í meinum

 

uns honum lýkur

einsog deginum

fyrir austan

sól

og vestan

mána.

 

og bítur loks

í skottið

á sjálfum sér.


Ekki sammála...

..því að þarna sé um ekki frétt að ræða. Þarna sannast enn og aftur að við eigum frábæra flugmenn sem fljúga við einhverjar verstu aðstæður í heimi. Þeir bregðast rétt við og þekkja vélina út í hörgul. Fokker er einhver traustasta flugvélategund sem til er og það er hægt að treysta þeim fullkomlega. Sem betur fer var ekki um alvarlega frétt að ræða, þökk sé frábærum íslenskum flugmönnum og traustum flugvélum.
mbl.is Fokker „skoppaði" á brautinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband