Færsluflokkur: Bloggar
1.5.2008 | 12:36
Nallinn, baráttusöngur verkalýðsins
Fram, þjáðir menn í þúsund löndum
sem þekkið skortsins glímutök !
Nú bárur frelsis brotna á ströndum
boða kúgun ragnarök
Fúnar stoðir burtu vér brjótum
Bræður! Fylkjum liði í dag !
Vér bárum fjötra, en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag
Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn i hönd !
Því Internationalinn
mun tengja strönd við strönd
Á hæðum vér ei finnum frelsi,
hjá furstum eða goðaþjóð;
nei, sameinaðir sundrum helsi
og sigrum, því ei skortir móð.
Alls hins stolna aftur vér krefjumst,
ánauð þolir hugur vor trautt,
og sjálfir brátt vér handa hefjumst
og hömrum meðan járn er rautt
Vér erum lagabrögðum beittir
og byrðar vorar þyngdar meir,
en auðmenn ganga gulli skreyttir
og góssi saman raka þeir.
Nú er tími til dirfsku og dáða.
Vér dugum, - þiggjum ekki af náð,
Látum bræður því réttlætið ráða,
svo ríkislög vor verði skráð
Till sigurs, eining öreiganna
með alþýðunnar stolta nafn
Þín jörð er óðal allra manna,
en ekki fyrir gamm né hrafn !
Þeirra kyn skóp þér örbirgð og ótta
en er þeir skuggar hverfa úr sýn
einn vordag snemma á feigðarflötta
mun fegurð lífsins verða þín
Sókn til frelsis er falin
vorri fylkingu í dag
unz Internationalinn
er allra bræðrarlag
Höf.: Eugén Pottier
þýð.: Sveinbjörn Sigurjónsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.4.2008 | 03:31
Ný heimasíða Hvítasunnukirkjunnar Mózaik.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
26.4.2008 | 17:52
Blind Willie McTell eftir Bob Dylan.
Seen the arrow on the doorpost
Saying, "This land is condemned
All the way from New Orleans
To Jerusalem."
I traveled through East Texas
Where many martyrs fell
And I know no one can sing the blues
Like Blind Willie McTell
Well, I heard the hoot owl singing
As they were taking down the tents
The stars above the barren trees
Were his only audience
Them charcoal gypsy maidens
Can strut their feathers well
But nobody can sing the blues
Like Blind Willie McTell
See them big plantations burning
Hear the cracking of the whips
Smell that sweet magnolia blooming
(And) see the ghosts of slavery ships
I can hear them tribes a-moaning
(I can) hear the undertaker's bell
(Yeah), nobody can sing the blues
Like Blind Willie McTell
There's a woman by the river
With some fine young handsome man
He's dressed up like a squire
Bootlegged whiskey in his hand
There's a chain gang on the highway
I can hear them rebels yell
And I know no one can sing the blues
Like Blind Willie McTell
Well, God is in heaven
And we all want what's his
But power and greed and corruptible seed
Seem to be all that there is
I'm gazing out the window
Of the St. James Hotel
And I know no one can sing the blues
Like Blind Willie McTell
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2008 | 21:47
Víkingar!!!!!!!!
Við erum komnir á þann stað þar sem við eigum að vera. Til hamingju strákar í meistaraflokki í handboltanum... Þið eruð frábærir!!!! Besta afmælisgjöf sem hægt er að hugsa sér...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.4.2008 | 13:15
Gleðilegt sumar.
Nú er sumarið komið, rigningin á næsta leiti og vetrardekkin undan... vonandi eigið þið öll gott sumar, hvíld í grösugum hlíðum og sól í hjarta.
Hér er Summertime eftir Gershwin:
Summertime,
And the livin' is easy
Fish are jumpin'
And the cotton is high
Your daddy's rich
And your mamma's good lookin'
So hush little baby
Don't you cry
One of these mornings
You're going to rise up singing
Then you'll spread your wings
And you'll fly to the sky
But till that morning
There's a'nothing can harm you
With daddy and mamma standing by
Summertime,
And the livin' is easy
Fish are jumpin'
And the cotton is high
Your daddy's rich
And your mamma's good lookin'
So hush little baby
Don't you cry
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.4.2008 | 13:31
Til hamingju Víkingar!!!
Víkingur knattspyrnufélag er 100 ára í dag. Til hamingju og ég sendi mitt þakklæti fyrir að hafa fengið að tengjast þessu liði og að hafa fengið að sjá besta handboltalið sem til hefur verið á Íslandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.4.2008 | 00:13
Jón Mar
Eitthvað innra með mér
grætur enn
þig minn horfni vinur
þig sem sem fórst á hádegi
þig sem áttir sólina
þig sem varst hafið
þig sem gast flogið
þig sem eignaðist dauðann
minn horfni vinur
eitt hádegið
blæddi úr sólinni
innra með mér græt ég þig
minn horfni vinur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
16.4.2008 | 20:22
Hættur að blogga.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
16.4.2008 | 12:26
Byrjun
Mig dreymdi draum í nótt sem leið
um drauga sem ég átti´ um skeið
ég lokaði öllum dyrum og dró fyrir gluggann
ég leit í gegnum lófa minn
og lagðist bakvið steininn þinn
þrjár konur þögðu allar uppvið skuggann.
Þær sáu ekki er ég smaug út
þær smyrja vildu mig með klút
en ég var frír og á burtu floginn
nú loksins alltaf lifir hann
og lýsir fyrir konu og mann
því tendraður er hann lífsins loginn.
Ætli ég vakni enn á ný
ef aftur verður sólin hlý
eða erum við enn fyrir átta árum?
Ég hegg nú loksins á minn hnút
héðan liggur leiðin út
er harmur minn hulinn gleðitárum?
Nú hallar hlýrri nóttu skjótt
ég held að mér sé orðið rótt
ég veit það ert þú sem eftir mér sendir
nú legg ég aftur augun þreytt
því ekkert hér mig getur meitt
og bráðum kemur byrjun þó hér sé endir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.4.2008 | 00:47
Manstu þá vinda.
Manstu þá vinda
er blésu vetri burt
manstu þá daga
er ástin var lítil jurt
manstu þær nætur
er átti ég með þér
manstu það vorið
sem löngu liðið er.
Manstu þær götur
er gekk ég með þér
manstu þau ljóðin
sem engin framar sér
manstu þá söngva
er sungu lífsins blóm
veturinn deyddi
með kuldans beru klóm.
Nú vindar eru hljóðir
alveg einsog þú
gleymdir þeir dagar
er vorið var mín trú
horfnar þær nætur
er átti ég með þér
vorið á burtu
og haust í hjarta mér.
Þegar það vorar
og vermir enn á ný
þá skal ég syngja
um dægrin svo hlý
þá skal ég láta
líktog værir þú hér
þá skal ég finna
jurt í brjósti mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)