Á föstudaginn langa.

 

Kristur

Ég kveiki á kertum mínum
við krossins helga tré.
Í öllum sálmum sínum
hinn seki beygir kné.
Ég villtist oft af vegi.
Ég vakti oft og bað.
Nú hallar helgum degi
á Hausaskeljastað.

Í gegnum móðu' og mistur
ég mikil undur sé.
Ég sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
Á klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.

Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur koss.
Ég sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað.-
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.

Ég bíð, uns birtir yfir
og bjarminn roðar tind.
Hvert barn, hvert ljóð, sem lifir,
skal lúta krossins mynd.
Hann var og verður kysstur.
Hann vermir kalda sál.
Þitt líf og kvalir, Kristur,
er krossins þögla mál.

Þú ert hinn góði gestur
og guð á meðal vor, -
og sá er bróðir bestur,
sem blessar öll þín spor
og hvorki silfri safnar
né sverð í höndum ber,
en öllu illu hafnar
og aðeins fylgir þér.

Þú einn vilt alla styðja
og öllum sýna tryggð.
Þú einn vilt alla biðja
og öllum kenna dyggð.
Þú einn vilt alla hvíla
og öllum veita lið.
Þú einn vilt öllum skýla
og öllum gefa grið.

Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn á ferð.
Þú grætur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veist er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú sérð og elskar alla,
þó allir svíki þig.

Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.


Davíð Stefánsson
Guðrún Böðvarsdóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Sæll og blessaður

Mikið var þetta falleg lesning.

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 10.4.2009 kl. 20:54

2 Smámynd: Gulli litli

Kúl félagi..

Gulli litli, 11.4.2009 kl. 08:28

3 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Magnað ljóð.

Marta Gunnarsdóttir, 11.4.2009 kl. 09:57

4 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæll Guðni!

Var að enda við að lesa vitnisburðinn þinn íMogganum.Góður vitnisburður um að trúin á Jesú breytir böli í blessun. Guð blessi þig og þitt fólk og gefi ykkur blessunarríka hátíð.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 11.4.2009 kl. 12:12

5 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ótrúlega fallegt ljóð Guðni minn.

Hilmar Gunnlaugsson, 12.4.2009 kl. 02:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband